Lög Orðsins - félags um útbreiðslu Guðs orðs
1. grein. Nafn
Nafn félagsins er Orðið – félag um útbreiðslu Guðs orðs.
2. grein. Markmið
Markmið félagsins er að vinna fólk fyrir Drottin Jesú Krist:
a. Með því að sameina evangelíska kristna leikmenn til kristilegs starfs.
b. Með persónulegum vitnisburði og starfi einstakra félaga.
c. Með því að útdeila Biblíunni - Guðs heilaga orði - eða einstökum ritum hennar og með persónulegri dreifingu hennar.
3. grein. Félagar
Félagar skulu vera karlar og konur, aðrir en prestar og forstöðumenn kristinna safnaða, fullra 18 ára. Þeir skulu trúa Biblíunni sem innblásnu orði Guðs, trúa á Drottin Jesú Krist sem eilífan Guðs son, hafa tekið við honum sem persónulegum frelsara sínum og leitast við að fylgja honum í daglegu lífi sínu, vera fullgildir meðlimir einhverrar kirkju eða safnaðar, sem byggir á þessum grundvelli og hafa fasta búsetu á Íslandi.
Enginn telst félagi fyrr en stjórn félagsins hefur samþykkt umsókn hans þar að lútandi. Með umsókn skulu fylgja meðmæli þriggja núverandi félaga.
4. grein. Stjórn
Stjórn félagsins skal kosin á aðalfundi félagsins, sem að jafnaði skal haldinn fyrir lok maí ár hvert, til tveggja ára í senn og skal stjórn skipuð forseta, varaforseta, ritara, kapelán, gjaldkera og einum meðstjórnanda. Kjósa skal forseta sérstakri kosningu á aðalfundi en að öðru leyti skiptir stjórn sjálf með sér verkum. Kosningu skal haga þannig að annað árið sé forseti og tveir stjórnarmenn kosnir og hitt árið séu þrír stjórnarmenn kosnir. Leitast skal við að jafnt hlutfall kynja sé í stjórn. Eldri reglur í samþykktum eða innri reglum félagsins sem eru í ósamræmi við grein þessa falla úr gildi.
5. grein. Samþykktir og innri reglur
Félagið starfar í deildum í samræmi við samþykktir og innri reglur félagsins sem bornar skulu undir aðalfund til staðfestingar.
6. grein. Lagabreytingar
Þessum lögum má breyta að nokkru eða öllu leyti á aðalfundi með tveimur þriðju hluta atkvæða fundarins. Lagabreytingartillögur skulu kunngerðar í aðalfundarboði sem borist hefur félagsmönnum með sannarlegum hætti með a.m.k. þriggja vikna fyrirvara.
7. grein. Slit félagsins
Tillögu um slit félagsins má eingöngu afgreiða á aðalfundi félagsins. Samþykki 4/5 atkvæða tveggja aðalfunda þarf til afgreiðslu slíkrar tillögu og skal tillagan áður hafa verið kynnt félagsmönnum með sama hætti og um lagabreytingartillögu væri að ræða samkvæmt 6. gr. Komi til slita á félaginu skulu eignir þess renna til Hins íslenska Biblíufélags. Verði félaginu slitið skal tilkynning þar að lútandi send almannaheillafélagaskrá Skattsins.
Síðast breytt og samþykkt á aðalfundi félagsins 28. maí 2022
.png)