Viltu gerast félagi í Orðinu?
Í 3. grein laga félagsins segir:
Félagar skulu vera karlar og konur, aðrir en prestar og forstöðumenn kristinna safnaða, fullra 18 ára. Þeir skulu trúa Biblíunni sem innblásnu orði Guðs, trúa á Drottin Jesú Krist sem eilífan Guðs son, hafa tekið við honum sem persónulegum frelsara sínum og leitast við að fylgja honum í daglegu lífi sínu, vera fullgildir meðlimir einhverrar kirkju eða safnaðar, sem byggir á þessum grundvelli og hafa fasta búsetu á Íslandi.
Tveir núverandi félagar þurfa að mæla með umsókn viðkomandi og einnig þarf að finna deild sem nýr félagsmaður þyrfti að tilheyra. Enginn telst félagi fyrr en stjórn félagsins hefur samþykkt umsókn hans þar að lútandi.
Hægt er að fylla út rafræna umsókn hér.
Einnig er hægt að sækja umsóknareyðublað hér til útprentunar og útfyllingar og skal þá koma því til skila til félagsmanns í Orðinu sem kemur því áleiðis til stjórnar.
Félagsgjald fyrir starfsárið 2026-27 er 12.000 kr í samræmi við samþykkt síðasta aðalfundar.
.png)